Fotbolti.net
14.10.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool horfir til þriggja miðjumanna

Alex Scott til Liverpool?

Alex Scott til Liverpool?

Canon

Mynd: EPA

Liverpool er farið að skoða möguleika sína á miðjumannamarkaðnum og hefur þrjá leikmenn í sigtinu. Frá þessu greinir blaðamaðurinn Ben Jacobs á X.
Margir stuðningsmenn Liverpool voru ósáttir við að félagið skyldi ekki styrkja miðjuna í sumar, sérstaklega stöðu varnarsinnaðs miðjumanns sem hefur lengi verið talin ein sú staða sem helst þurfi að styrkja.

Nokkrir leikmenn voru orðaðir við Liverpool í félagaskiptaglugganum en ekkert varð úr þeim málum.

Jacobs segir að Liverpool sé nú farið að skoða markaðinn á ný og hafi augastað á Alex Scott, leikmanni Bournemouth.

Bournemouth er sagt opið fyrir því að selja enska landsliðsmanninn í janúar en það er þó langt frá því að vera öruggt að hann yfirgefi félagið.

Ef tilboð upp á rúmar 100 milljónir punda berst og Bournemouth verður í góðri stöðu í deildinni er hins vegar ekki hægt að útiloka að Scott verði seldur.

Chelsea reyndi ítrekað að fá Scott í sumar og lagði fram nokkur tilboð en Bournemouth hafnaði þeim öllum.

Liverpool er þó með fleiri járn í eldinum ef félagið ákveður að styrkja miðjuna í janúar. Lamine Camara hjá Mónakó og Manu Kone, leikmaður Roma, eru einnig sagðir koma til greina.
Manu Kone er á listanum hjá Liverpool

Manu Kone er á listanum hjá Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.