Fotbolti.net
14.10.26 - 21:16
Brynjar Ingi Erluson

Mjög ólíklegt að Endrick fari til Milan

Endrick

Endrick

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Endrick mun að öllum líkindum klára tímabilið hjá Real Madrid, en Jose Mourinho, þjálfari liðsins, telur að hann hafi enn mikilvægu hlutverki að gegna hjá félaginu.
Endrick, sem er tvítugur, hefur fengið afar fá tækifæri hjá Real Madrid en nokkur félög sýndu honum áhuga í sumar og vildu fá hann á láni.

Brasilíumaðurinn vildi hins vegar vera áfram og sanna sig hjá Real Madrid, þótt það hafi reynst erfitt þar sem hann hefur lítið fengið að spila. Mourinho vill þó ekki lána hann frá félaginu og segir að tækifærin muni koma.

„Mér finnst Endrick ekki þurfa að fara á lán og ég tel að hann geti náð miklum árangri hér,“ sagði Mourinho.

„Það er alveg rétt að ég hef ekki gefið honum almennilegt tækifæri síðan hann kom til baka úr meiðslunum, en ég ætlaði að setja hann inn á gegn Villarreal. Svo skoruðum við mark og vorum manni færri, þannig að það er eðlilegt að þjálfarinn hugsi málið upp á nýtt,“ bætti hann við.

AC Milan er sagt hafa mikinn áhuga á að fá Endrick og gefa honum stærra hlutverk, en Brasilíumaðurinn hefur einnig verið orðaður við Roma, þar sem Mourinho var áður við stjórnvölinn, og nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni.

Nú eru enn minni líkur á að Endrick fari frá Real Madrid, enda gaf Mourinho honum loksins tækifæri gegn Roma í Meistaradeildinni í kvöld og Brassinn þakkaði fyrir traustið með marki og aðkomu að öðru í mögnuðum 4-3 endurkomusigri.
Mourinho vill ekki leyfa Endrick að fara

Mourinho vill ekki leyfa Endrick að fara

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.