14.10.26 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Nálgast ótrúlegt met Ronaldo

Harry Kane

Mynd: EPA

Ronaldo skoraði í ellefu leikjum í röð með Real Madrid frá 2017 til 2018

Mynd: EPA

Harry Kane

Mynd: EPA
Harry Kane færðist skrefi nær meti sem er í eigu Cristiano Ronaldo þegar hann skoraði tvennu í 3-3 jafntefli Bayern München gegn Viking í Meistaradeildinni í gær.
Úrslitin voru mikil vonbrigði fyrir Bayern München sem tókst ekki að leggja Noregsmeistarana að velli í Stavanger.
Kane skoraði hins vegar tvö mörk og heldur áfram að raða inn mörkunum. Englendingurinn hefur nú skorað í níu Meistaradeildarleikjum í röð og nálgast óðum met Ronaldo.
Ronaldo á metið en hann skoraði í ellefu Evrópuleikjum í röð með Real Madrid á árunum 2017 til 2018.
Það verður þó ekkert auðvelt fyrir Kane að jafna metið enda bíða Bayern tveir erfiðir leikir í Meistaradeildinni, fyrst gegn Arsenal og síðan Atlético Madríd á útivelli.
Takist Kane að skora í báðum leikjunum mun hann jafna met Ronaldo og fá tækifæri til að bæta það þegar Bayern heimsækir Lille þann 25. nóvember.

9 - Only Cristiano Ronaldo in April 2018 (11) has enjoyed a longer run of successive games with a goal in the European Cup/UEFA Champions League than Harry Kane's ongoing run of nine.
— OptaJoe (@OptaJoe) October 13, 2026
Longevity. https://t.co/Jzxu97Aa0u