Fotbolti.net
14.10.26 - 07:53
Elvar Geir Magnússon

Segir Belgíu hafa glatað mikilvægum árum undir stjórn Elísabetar

Elísabet Gunnarsdóttir.

Elísabet Gunnarsdóttir.

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Bart Lagae, íþróttafréttamaður hjá belgíska blaðinu De Standaard, segir að kvennalandslið Belgíu hafi glatað tveimur mikilvægum árum undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur. Hann segir liðið ekki hafa bætt sig neitt í þjálfaratíð hennar.

Í grein sinni segir Lagae að brottrekstur Elísabetar liggi í loftinu eftir að liðinu mistókst að komast á HM.

„Elísabet Gunnarsdóttir stendur frammi fyrir því að vera látin taka pokann sinn eftir að liðið mistókst enn á ný að komast á heimsmeistaramótið."

Belgíska kvennalandsliðið tapaði í gær í vítakeppni gegn Póllandi í umspilinu um að komast á HM og staða Elísabetar er mjög óörugg.

„Þetta er ekki í mínum höndum. Núna ríkja vonbrigði,“ sagði Elísabet þegar hún var spurð út í sína stöðu eftir tapið gegn Póllandi.
Það kom á óvart í Belgíu þegar Elísabet var ráðin í janúar 2025. Liðinu mistókst að komast upp úr riðlakeppninni á EM í fyrra undir hennar stjórn en liðið hafði þegar komist á mótið þegar hún var ráðin. Belgía féll svo úr Þjóðadeildinni. Nú er HM draumurinn horfinn.

„Fólk getur giskað á hvaða þýðingu úrslitin hafa fyrir landsliðsþjálfarann Gunnarsdóttur. Peter Willems, maðurinn sem réð hana til starfa og veitti henni vernd, hefur síðan verið látinn taka pokann sinn. Eftirmaður hans, Vincent Mannaert, staðfesti í viðtali í síðustu viku að það væri algjört lágmark fyrir Gunnarsdóttur að komast á heimsmeistaramótið," segir Lagae.
Segir Belgíu hafa glatað mikilvægum árum undir stjórn Elísabetar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.