14.10.26 - 19:39
Brynjar Ingi Erluson
Stórt tap hjá Breka

Breki Baldurs spilaði í tapi Åsane

Mynd: Esbjerg

Breki Baldurs spilaði í tapi Åsane

Mynd: Esbjerg
Framarinn Breki Baldursson kom við sögu þegar Åsane steinlá 6-1 fyrir Strömmen í norsku B-deildinni í kvöld.
Breki, sem kom frá Esbjerg í sumar, kom inn af bekknum í þessu stórtapi þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka og staðan 4-1 fyrir heimamenn.
Strömmen bætti við tveimur mörkum og er staða Breka og félaga áfram erfið. Åsane situr í næstneðsta sæti deildarinnar með 22 stig, tveimur stigum meira en botnlið Raufoss.
Davíð Snær Jóhannsson var í byrjunarliði Bryne sem gerði 1-1 jafntefli við Raufoss. Bryne er í sjötta sæti með 39 stig og því í umspilssæti um sæti í efstu deild.
Breki Baxter byrjaði hjá Egersund sem gerði markalaust jafntefli við Moss. Hinrik Harðarson kom inn af bekknum, en Egersund situr í áttunda sæti með 33 stig, sex stigum frá umspilssæti.