14.10.26 - 09:30
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Fetaði i fótspor foreldranna og systkini í landsliðunum

Ída Marín Hermannsdóttir býr sig undir að gefa á Hlín Eiríksdóttur sem kom Íslandi í 1-0.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þegar Ída Marín Hermannsdóttir skoraði annað mark Íslands gegn Króatíu á Laugardalsvellinum í gærkvöld, í seinni umspilsleik þjóðanna í keppninni um sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu, fetaði hún í fótspor beggja foreldra sinna.
Markið er hennar fyrsta fyrir A-landslið Íslands, í hennar ellefta landsleik, og kom á 40. mínútu leiksins. Ída vann boltann fyrir utan vítateig Króatíu, hægra megin, og sendi á Sveindísi Jane Jónsdóttur. Sveindís lék inn í vítateiginn og renndi svo boltanum aftur á Ídu sem lyfti honum laglega yfir Doris Becic, fyrrverandi markvörð Einherja á Vopnafirði, og undir þverslána.
Þetta er í annað skipti sem leikmaður sem skorar sitt fyrsta mark fyrir A-landslið Íslands getur státað af því að eiga foreldra sem hafa bæði leikið sama leik.
Þá eru nú systkini í A-landsliðum Íslands, karla og kvenna, líkast til í fjórða sinn sem það gerist í landsleikjasögunni.