Fotbolti.net
14.11.20 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Man Utd kom til baka gegn Man City

Tobin Heath

Tobin Heath

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
<b>Manchester United 2 - 2 Manchester City</b>
0-1 Chloe Kelly ('9)
0-2 Laura Coombs ('45+1)
1-2 Tobin Heath ('54)
2-2 Kirsty Hanson ('74)
Manchester United tók á móti Manchester City í Leigh í hádegisleik ensku ofurdeildarinnar. Manchester United var fyrir leikinn í toppsæti deildarinnar og City í fimtma sætinu.

City leiddi með tveimur mörkum í leikhléi en á 54. mínútu minnkaði Tobin Heath muninn með góðu marki sem má sjá hér að neðan. Það var svo Kirsty Hanson sem jafnaði metin tuttugu mínútum seinna. City hélt boltanum betur í þessum leik en United liðið átti tvöfalt fleiri skot á markið.

United er með 17 stig í efsta sæti en arsenal og Chelsea geta náð toppsætinu með þeim leikjum sem þau lið eiga inni. City er með tólf stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.