Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. janúar 2020 14:08
Magnús Már Einarsson
Fabinho og Matip æfðu með Liverpool í dag
Fabinho.
Fabinho.
Mynd: Getty Images
Fabinho og Joel Matip æfðu báðir með Liverpool í dag fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudag.

Fabinho hefur verið frá keppni síðan í lok nóvember vegna meiðsla en síðasti leikur Matip var gegn Manchester United 20. október.

Báðir leikmennirnir eru nú byrjaðir að æfa á ný og koma til greina í hóp um helgina.

Dejan Lovren er einnig á góðum batavegi eftir meiðsli aftan í læri og hann ætti að snúa fljótlega aftur til æfinga.

Fabinho og Lovren ættu að eiga erfitt með að komast aftur í liðið en Liverpool hefur haldið hreinu í fimm leikjum í röð með þá Virgil van Dijk og Joe Gomez í hjarta varnarinnar.
Athugasemdir
banner
banner