mið 15. janúar 2020 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski bikarinn: Tíu leikmenn Fiorentina kláruðu Atalanta
Mynd: Getty Images
Fiorentina 2 - 1 Atalanta
1-0 Patrick Cutrone ('11 )
1-1 Josip Ilicic ('67 )
2-1 Pol Lirola ('84 )
Rautt spjald: German Pezzella, Fiorentina ('70)

Fiorentina er komið áfram í 8-liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, eftir 2-1 heimasigur gegn Atalanta.

Patrick Cutrone, sem kom frá Wolves á dögunum, kom heimamönnum yfir á 11. mínútu og staðan var 1-0 fram á 67. mínútu þegar Josip Ilisic jafnaði leikinn fyrir gestina.

Á 70. mínútu fékk german Pezzella að líta rauða spjaldið hjá Fiorentina og léku heimamenn því einum færri síðustu tuttugu mínúturnar.

Það kom ekki að sök því Pol Lirola skoraði sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok fyrir Fiorentina og tryggði heimamönnum áfram. Tveir leikir fara fram síðar í dag í bikarinum:

Leikir dagsins:
17:00 Milan - SPAL
19:45 Juventus - Udinese
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner