Gunni Guðmunds: Er að móta nýjan hóp
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. vann Selfoss 3-1 í Lengjubikarnum í kvöld. Við ræddum við Gunnar Guðmundsson, þjálfara Selfyssinga, eftir leikinn.
„Það voru plúsar og mínusar. Það var margt gott í þessu en of mikið að fá þrjú mörk á sig sem mér fannst frekar ódýr, Ég er bæði sáttur og svekktur.\"
„Hópurinn er ekki fullmótaður og það á eftir að bætast inn í.\"
Gunnar þarf að móta gjörsamlega nýjan hóp því nánast allir leikmennirnir frá síðasta tímabili eru horfnir á braut.
„Verkefnið er spennandi og ég tekst á við það með jákvæðum huga. Það eru miklar breytingar frá því í fyrra en ég fæ tækifæri til að móta nýjan hóp.\"
Í viðtalinu sem sjá má í sjónvarpinu að ofan ræðir Gunnar einnig um þá erlendu leikmenn sem hann hefur fengið í sínar raðir.