Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 15. febrúar 2020 22:56
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Villarreal upp í sjötta sæti
Villarreal vann góðan sigur í kvöld
Villarreal vann góðan sigur í kvöld
Mynd: Getty Images
Carlos Fernandez tryggði Granada 2-1 sigur á Valladolid með marki í uppbótartíma á meðan Villarreal vann Levante með sömu markatölu í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Granada náði í mikilvægan sigur gegn Valladolid en Sergi Guardiola kom Valladolid yfir á 56. mínútu áður en Granada gerði út um leikinn á níu mínútum.

Antonio Puertas skoraði á 81. mínútu áður en Carlos Fernandez skoraði í uppbótartíma og kom Granada í 9. sæti spænsku deildarinnar. Villarreal vann Levante á meðan 2-1.

Gerard Moreno skoraði á 9. mínútu fyrir Villarreal áður en Madrídingurinn Borja Mayoral jafnaði metin. Moi Gomez, sem hefur verið afar mikilvægur í liði Villarreal, skoraði þá sigurmarkið þegar hálftími var eftir af leiknum.

Villarreal er í 6. sæti deildarinnar með 38 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Granada CF 2 - 1 Valladolid
0-1 Sergi Guardiola ('56 )
1-1 Antonio Puertas ('81 )
2-1 Carlos Fernandez ('90 )

Villarreal 2 - 1 Levante
1-0 Gerard Moreno ('9 )
1-1 Borja Mayoral ('56 )
2-1 Moi Gomez ('61 )
Athugasemdir
banner
banner
banner