15.02.25 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Toppbaráttuslagur á Ólympíuleikvanginum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fara þrír leikir fram í efstu deild ítalska boltans í dag, þar sem Atalanta mætir Cagliari í fyrsta leik dagsins.
Atalanta er í þriðja sæti, fimm stigum frá toppliði Napoli og getur því freistað þess að minnka bilið niður í tvö stig með sigri.
Napoli mætir næst til leiks í spennandi slag á útivelli gegn Lazio. Liðin mætast á Ólympíuleikvanginum í Róm, en Lazio er í fjórða sæti deildarinnar.
Napoli er aðeins með eins stigs forystu á Inter í titilbaráttunni.
AC Milan tekur að lokum á móti Verona í lokaleik dagsins. Milan þarf sigur í Evrópubaráttunni, á meðan Verona er þremur stigum frá fallsæti.
Leikir dagsins
14:00 Atalanta - Cagliari
17:00 Lazio - Napoli
19:45 Milan - Verona