Fotbolti.net
24.03.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Í liði ársins en verður ekki með í sumar - „Smá svekkjandi eftir á"

Í leik með Ægi 2024.

Í leik með Ægi 2024.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Andri Þór Grétarsson átti mjög gott tímabil með Ægi í fyrra og hjálpaði liðinu að vinna 2. deild og komast með því upp í Lengjudeildina.

Hann verður ekkert með liðinu í sumar vegna anna. Hann er að læra húsasmiðinn á Sauðárkróki og verður einnig erlendis stóran hluta af sumrinu. Hann vildi því ekki lofa sig hjá Ægi eða öðru félagi í sumar.
Hin hliðin - Andri Grétarsson (Ægir)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Andri Grétarsson (Ægir)

„Ég er að vinna sem smiður, er læra húsasmiðinn fyrir norðan og er að klára núna í lok árs þannig það er mikið að gera í því. Svo einnig verð ég erlendis hálft sumarið þar sem kærastan mín er að útskrifast úr skóla á Ítalíu og við verðum að ferðast í nokkrar vikur eftir það. Þannig gat ég ekki lofað mér hjá Ægi eða öðrum liði," segir Andri sem var valinn í lið ársins í 2. deild á síðasta tímabili fyrir frammistöðu sína.

„Það er smá svekkjandi eftir á því að tvö félög í Bestu deildinni höfðu samband og tékkuðu á mér. En þá var ég búinn að ákveða að vera ekki með í sumar."

Andri stefnir á að verða orðinn húsasmiður eftir sveinsprófið í byrjun næsta árs.

„Ég er að vinna hér fyrir sunnan og er í svona helgarnámi á króknum. Öll föðurættin mín er úr Skagafirðinum þannig það kom ekki annað til greina," segir Andri aðspurður hvort hann væri að læra á Akureyri eða á Króknum.

Andri er 27 ára markvörður og lék á sínum tíma ellefu leiki fyrir yngri landsliðin.

Ægir hefur í vetur fengið þá Sigurpál Sören Ingólfsson frá KR og Ómar Castaldo Einarsson frá Reyni Sandgerði til að berjast um markmannsstöðuna.
Í leik með Kórdrengjum fyrir nokkrum árum.

Í leik með Kórdrengjum fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.