lau 15. maí 2021 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samantekt
Ungir og spennandi leikmenn að verða samningslausir
Þórir Jóhann er á samningi út tímabilið.
Þórir Jóhann er á samningi út tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Borg Guðjohnsen
Arnór Borg Guðjohnsen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjalti Sigurðs
Hjalti Sigurðs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Máni Austmann
Máni Austmann
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Samantektin birtist fyrst þann 11. mars en var uppfærður 17. maí.

Íslandmótið er hafið en það stöðvar félög ekki í því að hugsa til framtíðar. Nú er hægt að ræða við flesta leikmenn sem renna út á samningi hjá öðrum félögum eftir tímabilið. Sex mánuðum áður en núgildandi samningur rennur út má leikmaður skrifa undir hjá nýju félagi.

Kveikjan að endurbirtingu eru þær fregnir að Sölvi Snær Guðbjargarson er genginn í raðir Breiðabliks en samningur hans við Stjörnuna átti að renna út eftir tímabilið.

Áður hafði Sævar Atli Magnússon skrifað undir samning við Breiðablik og yfirgefur Leikni eftir tímabilið í sumar.

Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður Gróttu, var keyptur á dögunum og fer til Eflsborg í júlí. Þann 16. apríl voru sex mánuðir í að margir á þessum lista máttu hefja viðræður við önnur félög.

Fótbolti.net tók saman lista af efnilegum leikmönnum, leikmönnum sem fæddir eru árið 1998 eða síðar, sem léku hlutverk (a.m.k. tvo leiki) hjá sínum liðum í fyrra eða voru í U18, U19 eða U21 landsliðsúrtökum núna í vetur. Liðin sem um ræðir eru þau tólf lið sem léku í Pepsi Max-deildinni í fyrra og þau tvö sem enduðu í efstu sætum næstefstu deildar í fyrra. Miðað er við heimasíðu KSÍ daginn 15. maí og samningaferil leikmanna þar, mögulega á eftir að skila inn samningum þangað inn.

Listinn var fyrst tekinn saman 11. mars og hefur verið uppfærður. Ef villur eru á listanum má hafa samband með tölvupósti á [email protected] eða í einkaskilaboðum á Twitter.

Efnilegir leikmenn sem renna út á samningi árið 2021:
Valur: Enginn

FH:
Baldur Logi Guðlaugsson 16.10
Dagur Þór Hafþórsson 16.10 (er á láni hjá ÍH út tímabilið)
Þórir Jóhann Helgason 31.12

Stjarnan: Enginn

Breiðablik:
Ólafur Guðmundsson 16.10 (er á láni hjá Grindavík út tímabilið)

KR:
Hjalti Sigurðsson 16.10
Valdimar Daði Sævarsson 16.10 (er á láni hjá KV út tímabilið)

Fylkir:
Arnór Borg Guðjohnsen 16.10
Birkir Eyþórsson 16.10

KA:
Bjarni Aðalsteinsson 31.10

ÍA:
Aron Kristófer Lárusson 16.10

HK: Enginn

Víkingur: Enginn

Keflavík: Enginn

Leiknir:
Sævar Atli Magnússon 31.12 (Fer í Breiðablik eftir tímabilið)
Sólon Breki Leifsson 31.12
Máni Austmann Hilmarsson 31.12
Arnór Ingi Kristinsson 16.10

Fjölnir:
Arnór Breki Ásþórsson 16.10
Hallvarður Óskar Sigurðarson 16.10
Kristófer Óskar Óskarsson 16.10 (er á láni hjá Aftureldingu)
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson 16.10 (er á láni hjá Þrótti út tímabilið)

Grótta:
Hákon Rafn Valdimarsson 1.11 (Fer til Elfsborg í sumar)
Axel Sigurðarson 30.11
Kjartan Kári Halldórsson 30.12

Annað úr landsliðsúrtökunum:

ÍBV:
Eyþór Orri Ómarsson 16.10
Tómas Bent Magnússon 31.12
Athugasemdir
banner
banner
banner