Fotbolti.net
15.09.26 - 22:11
Kári Snorrason

Óli Skúla: Auðvitað var þetta skrýtið

Auglýsing
Óli Skúla: Auðvitað var þetta skrýtið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Framarar hafa reynst okkur erfiðir og ég er mjög ánægður með frammistöðuna í dag,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks eftir 1-3 sigur á Fram á Lambhagavelli fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 3 Breiðablik
Í fyrri tveimur viðureignum liðanna á tímabilinu hefur Breiðablik fengið á sig átta mörk. Ólafur segir upplegg kvöldsins hafa markast af því að liggja dýpra en áður.

„Miðað við hvernig leikirnir hafa spilast gegn Fram höfum við reynt að stíga á þá og pressa þá hátt á vellinum. Þeir eru mjög góðir í því að spila yfir pressu, með fljóta og góða leikmenn sem eru góðir að vinna seinni bolta.

Við höfum verið í brasi með það og tókum þá ákvörðun að bakka aðeins á þá. Leyfa þeim að stýra með boltann þó að mér fannst okkar stjórn góð.“


Þungu fargi létt af hópnum
Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins hafði verið á dagskrá Blika allt frá því að þeir unnu sigur á Víkingi í undanúrslitum í júní.

„Maður finnur það alveg að þetta var yfirþyrmandi. Við erum auðvitað gríðarlega stoltir og ánægðir að hafa unnið þennan titil - mikilvægt fyrir félagið og hópinn. Maður sá það í dag að það var léttir; menn örlítið hugrakkari, góðir spilkaflar inn á milli. Það er klárt að þetta gefur okkur sjálfstraust,“ sagði Ólafur og var spurður út í hvort biðin eftir úrslitunum hefði verið full löng.

„Ég ætla ekkert að tjá mig um það en auðvitað var þetta skrýtið. Ég neita því ekki. Væntanlega hefur Birkir mótastjóri þurft að stilla þessu upp vegna Evrópukeppna og svo framvegis. Það er ekkert hægt að kvarta yfir því en þetta var krefjandi.“
Óli Skúla: Auðvitað var þetta skrýtið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óli Skúla: Auðvitað var þetta skrýtið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.