Fotbolti.net
15.09.26 - 22:07
Brynjar Ingi Erluson

Iraola: Þetta er nær þeirri útgáfu sem ég vil sjá

Andoni Iraola

Andoni Iraola

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segir liðið færast sífellt nær þeirri útgáfu sem hann vill sjá eftir 3-1 sigurinn á Tottenham í enska deildabikarnum í kvöld.
Enski deildabikarinn: Liverpool sló út Tottenham - 16 ára í aðalhlutverki hjá Arsenal
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Liverpool sló út Tottenham - 16 ára í aðalhlutverki hjá Arsenal

Spánverjinn gerði tíu breytingar á liðinu en það virtist litlu skipta.

Alexis Mac Allister skoraði og lagði upp mark Cody Gakpo áður en Conor Gallagher minnkaði muninn. Stórbrotið mark Dominik Szoboszlai gerði síðan út um leikinn og tryggði Liverpool sæti í næstu umferð.

„Mér fannst leikurinn rosalega kaflaskiptur. Við vorum að þjarma mikið að þeim og komumst yfir en um leið og það gerðist náðu þeir að færa sig nær okkar svæðum, sérstaklega í föstum leikatriðum þar sem við vorum í vandræðum. Mér fannst við samt vera góðir.“

„Liðið var gott á köflum og mér fannst eins og við fyndum orkuna og allir ýttu fram á við. Þetta var mun nær þeirri útgáfu sem ég vil sjá af liðinu,“
sagði Iraola.

Szoboszlai er þekktur fyrir stórkostleg mörk og þetta minnti hreinlega á Liverpool-goðsögnina Steven Gerrard, sem átti það til að hamra boltanum í netið af löngu færi.

„Málið með Dom er að þegar hann ætlar sér að skora þá á hann raunverulega möguleika á því. Maður hefur mikla trú á honum því hann hefur gert þetta áður. Hann er stórkostlegur í að klára færin.“

Andy Robertson sneri aftur á Anfield eftir að hafa gengið í raðir Tottenham í sumar að loknum tæpum áratug hjá Liverpool og fékk frábærar móttökur.

„Hann verðskuldaði þetta og ég var ánægður fyrir hans hönd. Ég hugsaði í alvöru um hvað hann ætti skilið eftir að hafa gefið Liverpool svona mikið.“

Næsti leikur Liverpool er útileikur gegn gömlu lærisveinum Iraola í Bournemouth.

„Ég veit að sá leikur verður mjög erfiður. Maður sér hversu fáum leikjum þeir tapa á tímabili og þetta er erfiður staður að fara á. Maður þarf að vera virkilega góður til þess að vinna þar,“ sagði Iraola.
Szoboszlai skoraði sturlað mark

Szoboszlai skoraði sturlað mark

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.