Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 15. maí 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Messi skoraði tvö í sigri PSG
Lionel Messi og Kylian Mbappe áttu góðan leik
Lionel Messi og Kylian Mbappe áttu góðan leik
Mynd: EPA
Argentínski sóknartengiliðurinn Lionel Messi skoraði tvö mörk er Paris Saint-Germain vann Montpellier 4-0 í frönsku deildinni í gær.

Messi hafði aðeins skorað fjögur mörk í deildinni fram að leiknum í gær en hann gerði fimmta mark sitt eftir sendingu frá Kylian Mbappe á 6. mínútu.

Mbappe var með boltann vinstra megin í teignum og rúllaði honum snyrtilega fyrir Messi sem skoraði.

Fjórtán mínútum síðar gerði hann annað mark sitt. Mbappe fékk boltann á vinstri vængnum og átti glæsilega fyrirgjöf á Messi sem sólaði markvörðinn og lagði boltann í autt netið.

Angel Di Maria gerði þriðja markið áður en PSG fékk svo vítaspyrnu á 59. mínútu sem Kylian Mbappe fiskaði. Messi átti möguleika á þrennunni en Mbappe tók spyrnuna í staðinn og gulltryggði 4-0 sigur.

Messi er með þrettán stoðsendingar og sex mörk á fyrsta tímabili sínu í París en Mbappe er með 25 mörk og 19 stoðsendingar í 34 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner