Fotbolti.net
15.05.22 - 17:19
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu markvörsluna sem heldur titilvonum Liverpool á lífi

Sjáðu markvörsluna sem heldur titilvonum Liverpool á lífi
Canon

Mynd: Getty Images

Margir stuðningsmenn Liverpool óttuðust að ekki væri lengur möguleiki á Englandsmeistaratitlinum eftir jafntefli við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Það reyndist ekki raunin eftir viðureign West Ham gegn Manchester City í dag þar sem Hamrarnir komust í tveggja marka forystu og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli.

Riyad Mahrez fékk tækifæri til að gera sigurmark City á 86. mínútu þegar dæmd var vítaspyrna en Lukasz Fabianski varði frábærlega.

Mark frá Mahrez hefði svo gott sem innsiglað titilinn fyrir City en þess í stað þurfa lærisveinar Pep Guardiola sigur í lokaumferðinni. City tekur á móti lærisveinum Steven Gerrard í Aston Villa í þeim leik.

Sjáðu atvikið

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.