Fotbolti.net
15.05.26 - 10:55
Elvar Geir Magnússon

Miðasala hafin þrátt fyrir alla óvissuna vegna njósnamálsins

Frá heimavelli Southampton.

Frá heimavelli Southampton.

Canon

Mynd: EPA

Miðar eru farnir í sölu fyrir úrslitaleik Championship umspilsins þrátt fyrir að óvissa sé um að leikurinn muni fara fram eins og áætlað er.

Hull City og Southampton eiga að mætast í leiknum en beðið er eftir niðurstöðu úr rannsókn á njósnamálinu umtalaða.

Aðili úr þjálfarateymi Southampton njósnaði um æfingu Middlesbrough, innan við 72 tíma viðmiðisins, áður en liðin mættust í fyrri undanúrslitaleik sínum.

Dæmt verður í málinu þriðjudaginn 19. maí eða fyrr en úrslitaleikurinn á að fara fram laugardaginn 23. maí. Möguleiki er á að leiknum verði frestað eftir niðurstöðuna, ef það kemur áfrýjun frá öðru hvoru félaginu.

Gríðarlega mikið er í húfi en liðið sem vinnur úrslitaleikinn mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Njósnamálið tekið fyrir á næstu dögum - Fer Middlesbrough á Wembley?
TENGT EFNI

Njósnamálið tekið fyrir á næstu dögum - Fer Middlesbrough á Wembley?

Möguleg refsing fyrir Southampton gæti verið sekt, stigafrádráttur eða jafnvel að liðið fær ekki að spila úrslitaleikinn.

Leikgreinandi hjá Southampton faldi sig bak við tré og myndaði á æfingasvæði Middlesbrough. Þegar það var tekið eftir honum lagði hann á flótta sem virtist þaulskipulagður en hann lét sig hverfa inn í golfskála rétt hjá æfingasvæðinu og hafði fataskipti inni á salerni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.