Fotbolti.net
13.05.26 - 15:16
Elvar Geir Magnússon

Birta mynd af njósnaranum - Faldi sig bak við tré

Njósnarinn faldi sig bak við tré.

Njósnarinn faldi sig bak við tré.

Canon

Mynd: Daily Mail

Enskir fjölmiðlar fjalla ítarlega um njósnamálið stóra í Championship-deildinni en Southampton er sakað um að hafa sent njósnara á æfingu hjá Middlesbrough.

Daily Mail hefur birt mynd þar sem sjá má leikgreinanda Southampton mynda á æfingasvæði Middlesbrough þar sem hann felur sig bak við tré.

Southampton vann nauman 2-1 sigur á Middlesbrough í undanúrslitum umspilsins og er á leið í úrslitaleik gegn Hull á Wembley þar sem sæti í úrvalsdeildinni er í boði. Tveimur dögum fyrir fyrri leikinn sást aðili úr þjálfarateymi Southampton vera að njósna á æfingasvæði Middlesbrough.

Málið er í rannsókn en Þjóðverjinn Tonda Eckert sem stýrir Southampton gekk út af fréttamannafundi í gær þegar hann var spurður að því hvort hann væri svindlari.

Áhugavert verður að sjá hvort og hvaða refsingu Southampton muni þá fá. Á Ólympíuleikunum í París 2024 voru sex stig dregin af kvennaliði Kanada í fótbolta eftir að í ljós kom að þjálfarateymi liðsins njósnaði um æfingu Nýja-Sjálands með því að nota dróna.
Stjóri Southampton gekk út af fréttamannafundi í annað sinn - „Sýndu smá virðingu“
TENGT EFNI

Stjóri Southampton gekk út af fréttamannafundi í annað sinn - „Sýndu smá virðingu“

Fréttaskýring á vettvangi frá Sky Sports:

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.