Kaoru Mitoma, hinn stórskemmtilegi vængmaður Brighton, er ekki í 26 manna leikmannahópi japanska liðsins fyrir HM í sumar en meiðsli aftan í læri, sem hann hlaut í 3-0 sigri á Wolves, gera það að verkum að hann missir af mótinu.
Hann verður því augljóslega ekki með Brighton í síðustu tveimur leikjum úrvalsdeildarinnar og ekki með í vináttulandsleik Japans gegn Íslandi um mánaðamótin.
Japan er í F-riðli á HM og mætir þar Hollandi í fyrsta leik sínum 14. júní áður en liðið mætir Túnis og svo Japan.
Hann verður því augljóslega ekki með Brighton í síðustu tveimur leikjum úrvalsdeildarinnar og ekki með í vináttulandsleik Japans gegn Íslandi um mánaðamótin.
Japan er í F-riðli á HM og mætir þar Hollandi í fyrsta leik sínum 14. júní áður en liðið mætir Túnis og svo Japan.
Hajime Moriyasu landsliðsþjálfari Japans tilkynnti hóp sinn í dag en Wataru Endo hjá Liverpool, Daichi Kamada hjá Crystal Palace, Ao Tanaka hjá Leeds og Daizen Maeda hjá Celtic eru allir valdir.
„Þetta særir hann meira en alla aðra. Ég vona að þegar hann kemst yfir þetta muni hann ná sér eins fljótt og hægt er," segir Moriyasu.
HM fer af stað 11. júní og er haldið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Japanski hópurinn:
Markverðir: Tomoki Hayakawa (Kashima Antlers), Keisuke Osako (Sanfrecce Hiroshima), Aya Suzuka (Parma Calcio).
Varnarmenn: Yuto Nagatomo (FC Tokyo), Shogo Taniguchi (Sint-Truiden), Ko Itakura (Ajax), Tsuyoshi Watanabe (Feyenoord), Takehiro Tomiyasu (Ajax), Hiroki Ito (Bayern Munich), Ayumu Seko (Le Havre AC), Yukinari Sugawara (Werder Bremen), Junosuke Suzuki (FC Copenhagen).
Miðjumenn: Wataru Endo (Liverpool), Junya Ito (Genk), Daichi Kamada (Crystal Palace), Koki Ogawa (NEC Nijmegen), Daizen Maeda (Celtic), Ritsu Doan (Eintracht Frankfurt), Ao Tanaka (Leeds United), Kaishu Sano (Mainz 05), Takefusa Kubo (Real Sociedad)
Sóknarmenn: Ayase Ueda (Feyenoord), Keito Nakamura (Stade de Reims), Ito Suzuki (SC Freiburg), Kento Shiode (Wolfsburg), Keisuke Goto (Sint-Truiden).


