„Við erum bara mjög ánægðir. Það er alltaf gaman að vinna og örlítið sætara að vinna KR þannig að við erum mjög ánægðir" sagði Sindri Snær, miðjumaður ÍBV, eftir sigur gegn KR.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 1 KR
„Við þurftum á þessum stigum að halda og vorum staðráðnir í að nýta þessa landsliðspásu og byrja stigasöfnunina aftur og við þurfum að fylgja henni áfram."
Sindri skoraði tvö af þremur mörkum ÍBV í leiknum og var það fyrra stórglæsilegt. Spurður hvort hann hafi skorað mörg flottari mörk en það á ferlinum svaraði Sindri: „Nei, ég á eitt andskoti flott með Keflavík á móti Stjörnunni en þetta er á svipuðum stað. Ég þarf aðeins að skoða það."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir























