Fotbolti.net
15.06.26 - 01:04
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Ofurvaramaðurinn Amad Diallo réði úrslitum

HM: Ofurvaramaðurinn Amad Diallo réði úrslitum
Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsströndin 1 - 0 Ekvador
1-0 Amad Diallo ('90)
Fílabeinsströndin og Ekvador áttust við í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins í kvöld og úr varð skemmtilegur slagur.

Bæði lið komust nálægt því að skora í fyrri hálfleik en boltinn rataði ekki í netið. Ekvador skaut tvisvar sinnum í slána og klúðruðu Fílbeinsstrendingar góðum færum.

Staðan hélst markalaus allt þar til á lokamínútunum. Þegar allt stefndi í fyrsta markalausa leik heimsmeistaramótsins 2026 tók Amad Diallo, sem byrjaði á varamannabekknum, til sinna ráða.

Á 90. mínútu vann Fílabeinsströndin boltann og skeiðaði varnarmaðurinn Wilfried Singo upp völlinn þar til hann fann Amad í góðri stöðu. Kantmaðurinn knái gerði vel að stýra boltanum viðstöðulaust í netið úr nokkuð erfiðu færi til að taka forystuna.

Sjö mínútum var bætt við venjulegan leiktíma en Ekvador tókst ekki að skapa hættu, svo lokatölur urðu 1-0. Liðin eru í E-riðli ásamt Þýskalandi og Curacao sem mættust fyrr í dag.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.