Fotbolti.net
04.07.26 - 16:55
Brynjar Ingi Erluson

EM U19 kvenna: Þrjú mörk dugðu ekki til sigurs

EM U19 kvenna: Þrjú mörk dugðu ekki til sigurs
Canon

Mynd: UEFA

Hertz
Ísland 3 - 4 Sviss
0-1 Ramona Schallberger ('16 )
1-1 Ingibjörg Magnúsdóttir ('26 )
1-2 Ramona Schallberger ('28 )
1-3 Melissa Rondalli ('45 )
1-4 Emanuela Pfister ('63 , víti)
2-4 Ingibjörg Magnúsdóttir ('70 )
3-4 Líf Joostdóttir Van Bemme ('83 )
Lestu um leikinn
U19 ára kvennalandslið Íslands lauk þátttöku á Evrópumótinu í Bosníu og Hersegóvínu í dag með 4-3 tapi gegn Sviss. Ísland tapaði þar með öllum þremur leikjum sínum á mótinu.

Ísland tapaði fyrir Austurríki og Spáni í fyrstu tveimur umferðunum án þess að skora, en íslenska liðið skoraði þrjú í dag.

Ramona Schallberger kom Sviss yfir á 16. mínútu en um tíu mínútum síðar jafnaði Ingibjörg Magnúsdóttir. Sóley Edda Ingadóttir átti þá langt innkast á Freyju Stefánsdóttur, sem flikkaði boltanum aftur fyrir sig. Ingibjörg og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir börðust báðar um boltann, en það var Ingibjörg sem skilaði honum í markið.

Schallberger kom Sviss aftur yfir aðeins tveimur mínútum síðar og Melissa Rondalli bætti við þriðja marki Sviss undir lok fyrri hálfleiks.

Emanuela Pfister kom Sviss í þriggja marka forystu með marki úr vítaspyrnu á 63. mínútu, en Ísland gafst ekki upp.

Ingibjörg gerði annað mark sitt og annað mark Íslands á mótinu þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Ragnheiður átti þá góðan sprett upp hægri vænginn og kom boltanum inn á Ingibjörgu, sem var ákveðin í teignum og skoraði.

Líf Joostsdóttir van Bemmel minnkaði muninn í eitt mark þegar hún stangaði hornspyrnu Védísar Aspar Einarsdóttur í netið. Frábær lokakafli hjá íslenska liðinu, en nær komst það ekki og 4-3 tap varð niðurstaðan.

Ísland er úr leik, en Austurríki og ríkjandi Evrópumeistarar Spánar fara áfram í undanúrslitin.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Spánn2+44
2Austurríki1+33
3Sviss101
4Ísland2-70
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.