Brasilíski varnarmaðurinn, Dani Alves, er samningslaus eftir að hann ákvað að yfirgefa PSG eftir leiktíðina.
Samkvæmt ensku fjölmiðlum vilja Manchester City, Tottenham og Arsenal öll reyna að krækja í Alves.
Samkvæmt ensku fjölmiðlum vilja Manchester City, Tottenham og Arsenal öll reyna að krækja í Alves.
Manchester City er talið líklegast til að hreppa leikmanninn en Pep Guiardiola og Alves þekkjast vel frá tíma þeirra saman hjá Barcelona.
Alves er 36 ára gamall og er skreyttasti knattspyrnumaður allra tíma en hann er með 42 titla á bakinu frá atvinnumannaferill hans hófst.
Alves bar fyrirliðaband brasilíska liðsins sem að tryggði sér Copa America titilinn nú á dögunum.
Athugasemdir