15.07.20 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Arteta: Yrði áfall að komast ekki í Evrópukeppni

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal er í níunda sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir tap gegn nágrönnum sínum í Tottenham um helgina. Þegar þrjár umferðir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni á Arsenal á hættu að ná ekki í Evrópusæti í fyrsta skipti síðan tímabilið 1995/1996.
Arsenal mætir Manchester City í undanúrslitum enska bikarsins en liðið getur ennþá náð sæti í Evrópudeildinni með sigri í bikarnum. Hins vegar er ljóst að Arsenal verður þriðja tímabilið í röð ekki í Meistaradeildinni.

„Þetta yrði mikið áfall," sagði Arteta aðspurður út í það ef Arsenal nær ekki Evrópusæti.
„Það eru miklar breytingar í gangi og það eru mörg félög sem hafa í sögunni alltaf verið í Meistaradeildinni en eru það ekki núna. Við erum ekki einir í þessari stöðu."
„Við höfum aldrei í sögu ensku úrvalsdeildarinnar verið með sjö lið að keppa um þessi sæti af sama styrkleika."
„Við þurfum að breyta ýmsum hlutum til að komast aftur á það stig sem við viljum að þetta fótboltafélag sé á."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |