Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. júlí 2021 21:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: KV aftur á sigurbraut - Upp í annað sæti
Nikola Dejan Djuric, hér í leik með Haukum, skoraði seinna mark KV.
Nikola Dejan Djuric, hér í leik með Haukum, skoraði seinna mark KV.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
KV 2 - 0 Kári
1-0 Kristján Páll Jónsson ('3)
2-0 Nikola Dejan Djuric ('61)

KV komst aftur á sigurbraut í 2. deild karla með góðum sigri gegn Kára á heimavelli í kvöld. KV tapaði óvænt gegn Völsungi í síðustu umferð deildarnnar.

Heimamenn settu tóninn strax á þriðju mínútu leiksins þegar Kristján Páll Jónsson skoraði.

KV var sterkari aðilinn í leiknum. Staðan var 1-0 í hálfleik en eftir rúmlega klukkutíma leik bætti Nikola Dejan Djuric við öðru marki fyrir Vesturbæinga.

Fleiri urðu mörkin ekki og flottur sigur KV niðurstaðan á KR-velli. KV er komið upp í annað sæti deildarinnar með 22 stig. Á meðan er Kári í næst neðsta sæti, sex stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner