Fotbolti.net
15.07.26 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segir engar líkur á að Mattías Kjeld fari í glugganum

Segir engar líkur á að Mattías Kjeld fari í glugganum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Mattías Kjeld hefur vakið mikla athygli og fengið mikið umtal vegna góðrar frammistöðu sinnar með Gróttu í sumar. Mattías er mjög efnilegur leikmaður, fæddur 2009, sem skipti í Gróttu frá Val fyrir tímabilið.

Hann hefur skorað sex mörk og lagt upp eitt á tímabilinu.

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, var spurður eftir leikinn í gær gegn Grindavík hvort það væru líkur á því að unglingalandsliðsmaðurinn færi frá félaginu í glugganum
„Nei, engar líkur," sagði Rúnar Páll. Mattías er samningsbundinn Gróttu út næsta ár.

En ætlar Grótta að fara á markaðinn í glugganum?

„Nei, við erum með fullt af góðum strákum, fullt af ungum strákum sem þurfa að fá tækifæri," sagði þjálfarinn.

Næsti leikur Gróttu er heimaleikur gegn Ægi á laugardag. Grótta er í 8. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 13 leiki.

Rúnar Páll: Mér fannst við spila alveg fáránlega vel í dag

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+2235
2Þróttur R.18+1934
3Fylkir18+934
4Njarðvík18+832
5HK18+931
6Grótta17+126
7Vestri18-924
8Leiknir R.18-322
9Grindavík18-620
10ÍR18-919
11Völsungur18-1417
12Ægir18-278
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.