Fotbolti.net
15.07.26 - 14:09
Elvar Geir Magnússon

Telur Bellingham hafa verið besta leikmann HM

Bellingham er 23 ára.

Bellingham er 23 ára.

Canon

Mynd: EPA

Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir leik Englands og Argentínu í undanúrslitum HM. Flautað verður til leiks á Mercedes-Benz vellinum klukkan 19:00.

Wayne Rooney, fyrrum sóknarmaður enska landsliðsins, segir að Jude Bellingham hafi verið besti leikmaðurinn á mótinu til þessa.

Bellingham, sem er miðjumaður Real Madrid, hefur skorað sex mörk í sex leikjum fyrir England.
„Þegar horft er til þess hver sé besti leikmaður heims þá skoðar maður Mbappe eða Haaland. Bellingham hefur ekki alveg náð þessum hæðum með félagsliði sínu en að mínu mati hefur hann verið besti leikmaðurinn á þessu heimsmeistaramóti," segir Rooney.

Fyrir mótið var umræða á Englandi um hvort Bellingham ætti að vera í byrjunarliði Englands en tölurnar tala sínu máli þegar hann klæðist enska búningnum. Hann er með níu mörk og þrjár stoðsendingar á stórmótum.

„Hjá Jude snýst þetta allt um orku, ástríðu, þrá og drifkraft. Hann er verðlaunaður fyrir það. Margir af bestu leikmönnum heims reiða sig á getuna og tæknina. Jude er með þrá og hungur. Það er einmitt það sem stuðningsmenn Englands vilja sjá, þeir vilja sjá leikmenn hlaupa og vinna fyrir liðið og fyrir merkið."
Telur Bellingham hafa verið besta leikmann HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.