Yrði stærsti sigur Englands síðan 1966

Frá úrslitaleiknum 1966.

Mynd: EPA

Bukayo Saka.

Mynd: EPA

Frá úrslitaleiknum 1966.

Mynd: EPA
Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir leik Englands og Argentínu í undanúrslitum HM. Flautað verður til leiks á Mercedes-Benz vellinum klukkan 19:00.
Phil McNulty, yfirmaður fótboltafrétta BBC, segir að ef England vinni í kvöld sé það stærsti sigur enska landsliðsins síðan það varð heimsmeistari í fyrsta og eina sinn 1966.
„Það hefur verið stór sálræn hindrun fyrir England að komast í úrslitaleik og vinna hann. Undanúrslit á HM eru öðruvísi en undanúrslit á HM. Ef England vinnur í kvöld verður það að mínu mati stærsti sigur liðsins síðan það vann úrslitaleik HM 1966," segir McNulty.

TENGT EFNI
15 dagar í HM - HM á Englandi 1966
Myndi láta Saka byrja
Eitt stærsta spurningamerkið fyrir byrjunarlið Englands er hvort Bukayo Saka muni byrja.
„Líkamlegt ástand Bukayo Saka hefur verið mikill höfuðverkur fyrir Thomas Tuchel á þessu heimsmeistaramóti. Hann hefur þurft að stýra því hversu mikið leikmaðurinn spilar vegna vandamála með hásinina," segir McNulty.
„Ef hann væri fullhraustur væri sæti hans í byrjunarliðinu öruggt, en Noni Madueke hefur þurft að spila þar sem Saka hefur ekki virkað upp á sitt besta. Þetta er stór ákvörðun, en ég myndi láta Saka byrja í dag í von um að hann sé í lagi. Ef ekki, og í ljósi vonbrigðaframmistöðu Madueke gegn Noregi, myndi ég þá velja Morgan Rogers."
Samkvæmt fréttum sem birtust eftir ummæli McNulty þá verður Rogers á kantinum.