15.08.26 - 16:43
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Viðar Örn með fimmu - Góðir sigrar hjá Kára og Magna

Viðar Örn fór á kostum, skoraði fimm og lagði upp eitt

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Marinó Hilmar skoraði tvö í góðum sigri Kára

Mynd: Kári

Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson fór á kostum í 6-2 sigri Selfoss á Fjölni í 2. deild karla í dag. Hann skoraði hvorki meira né minna en fimm mörk og lagði upp eitt.
Fjölnismenn komust yfir strax á 4. mínútu með marki Árna Steins Sigursteinssonar. Árni fékk boltann hægra megin í teignum og afgreiddi hann snyrtilega í fjærhornið.
Viktor Andri Hafþórsson tvöfaldaði forystuna tuttugu mínútum síðar og Fjölnir virtist kominn með góð tök á leiknum. Þá tók Viðar við.
Viðar skoraði þrennu á aðeins ellefu mínútum undir lok fyrri hálfleiks. Fyrsta markið var stórkostlegt, beint úr aukaspyrnu í slána og inn. Hann jafnaði tveimur mínútum síðar þegar hann mætti á fjærstöngina og kláraði færið örugglega.
Hann fullkomnaði þrennuna á 41. mínútu. Frosti Brynjólfsson sendi hann í gegn og Viðar lék á markvörðinn áður en hann kom boltanum í netið.
Viðar skoraði sitt fjórða mark á 58. mínútu þegar hann mætti á nærstöngina eftir hornspyrnu og stýrði boltanum inn.
Hann lét ekki þar við sitja heldur lagði upp fimmta mark Selfoss fyrir Ívan Breka Sigurðsson á 65. mínútu. Viðar slapp í gegn en renndi boltanum óeigingjarnt til hliðar á Ívan sem skoraði.
Fimmta mark Viðars kom stundarfjórðungi fyrir leikslok. Gestur Helgi Snorrason vann boltann ofarlega á vellinum og kom honum á Viðar sem þakkaði pent fyrir sig.
Viðar er kominn með nítján deildarmörk og er langmarkahæstur í deildinni. Selfoss er í öðru sæti með 32 stig en Fjölnir í því fjórða með 25 stig.
Magni vann öruggan 3-0 sigur á Kormáki/Hvöt á Grenivík. Tómas Örn Arnarson skoraði tvennu og Haukur Leo Þórðarson eitt mark. Magni er í 8. sæti með 21 stig en Kormákur/Hvöt í því sjötta með 24 stig.
Kári hafði þá betur gegn Víkingi Ó., 4-1. Skagamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik eftir mörk frá Sigurjóni Loga Bergþórssyni, Marinó Hilmari Ásgeirssyni og Finnboga Laxdal Aðalgeirssyni.
Marinó Hilmar skoraði sitt annað mark snemma í síðari hálfleik áður en Luis Romero klóraði í bakkann fyrir Ólsara stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Kári er í 3. sæti með 29 stig en Víkingur Ó. í því fimmta með 25 stig.
Selfoss 6 - 2 Fjölnir
0-1 Árni Steinn Sigursteinsson ('4 )
0-2 Viktor Andri Hafþórsson ('24 )
1-2 Viðar Örn Kjartansson ('30 )
2-2 Viðar Örn Kjartansson ('32 )
3-2 Viðar Örn Kjartansson ('41 )
4-2 Viðar Örn Kjartansson ('58 )
5-2 Ívan Breki Sigurðsson ('65 )
6-2 Viðar Örn Kjartansson ('74 )
Lestu um leikinn
Magni 3 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Tómas Örn Arnarson ('37 )
2-0 Tómas Örn Arnarson ('66 )
3-0 Haukur Leo Þórðarson ('90 )
Kári 4 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('4 )
2-0 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('10 )
3-0 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('25 )
4-0 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('48 )
4-1 Luis Romero Jorge ('75 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 17 | +21 | 38 |
| 2 | Selfoss | 17 | +9 | 32 |
| 3 | Kári | 17 | +18 | 29 |
| 4 | Fjölnir | 17 | +4 | 25 |
| 5 | Víkingur Ó. | 17 | -5 | 25 |
| 6 | Kormákur/Hvöt | 17 | +10 | 24 |
| 7 | Dalvík/Reynir | 16 | -1 | 21 |
| 8 | Magni | 17 | -12 | 21 |
| 9 | KFA | 17 | +3 | 20 |
| 10 | Þróttur V. | 16 | -7 | 16 |
| 11 | Hvíti riddarinn | 17 | -11 | 16 |
| 12 | KFG | 17 | -29 | 13 |