15.08.26 - 16:15
Brynjar Ingi Erluson
Æfingaleikir: Schade fór hamförum - Hákon skoraði gegn Everton

Schade skoraði tvö og lagði upp önnur tvö

Mynd: EPA

Hákon Arnar skoraði eina mark Lille í jafntefli gegn Everton

Brentford vann 7-0 stórsigur á Eintracht Frankfurt í síðasta æfingaleiknum fyrir tímabilið í dag. Hákon Arnar Haraldsson skoraði þá eina mark Lille í 1-1 jafntefli gegn Everton.
Þýski landsliðsmaðurinn Kevin Schade fór á kostum með Brentford gegn Frankfurt. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö.
Brasilíski framherjinn Igor Thiago, sem var sjóðandi heitur á síðustu leiktíð, skoraði einnig tvennu. Mamadou Sangare, Dango Ouattara og Keane Lewis-Potter komust sömuleiðis á blað.
Hákon Rafn Valdimarsson sat allan leikinn á varamannabekk Brentford.
Jack Hinshelwood, sem hefur verið orðaður við Arsenal síðustu daga, skoraði sigurmark Brighton í 1-0 sigri á Bologna.
Everton og Lille gerðu 1-1 jafntefli. Iliman Ndiaye kom Everton yfir á 42. mínútu en Hákon Arnar jafnaði í uppbótartíma síðari hálfleiks með glæsilegu skoti.
Nýliðar Hull City gerðu markalaust jafntefli við Nice og Leeds vann Augsburg örugglega, 4-0. Anton Stach, Tarik Muharemovic, James Justin og Lukas Nmecha skoruðu mörkin.
Newcastle United tapaði 2-1 fyrir Bayer Leverkusen. Malick Thiaw skoraði eina mark Newcastle undir lok fyrri hálfleiks.
Sunderland marði 2-1 sigur á Rennes. Brian Brobbey og Trai Hume skoruðu mörk enska liðsins í síðari hálfleik.
Hinn 19 ára gamli Mikey Moore skoraði tvennu í 3-0 sigri Tottenham á Hoffenheim. Richarlison komst einnig á blað en Mathys Tel lagði upp tvö mörk og Andy Robertson eitt.
Aston Villa tapaði 2-1 fyrir Gladbach. Villa var tveimur mörkum undir í hálfleik en John McGinn minnkaði muninn í þeim síðari. Brasilíski sóknarmaðurinn Alysson fékk síðan að líta rauða spjaldið.
Bournemouth laut í lægra haldi fyrir Mainz, 2-1. Evanilson skoraði mark Bournemouth.
Nýliðar Ipswich unnu þá 4-2 sigur á Union Berlín. Jack Clarke, Emerson og Dara O'Shea skoruðu í fyrri hálfleik áður en Kasey McAteer bætti fjórða markinu við undir lok leiks.