15.08.26 - 16:35
Brynjar Ingi Erluson
Aston Villa í viðræður við Parma

Mynd: Matthías Már

Mynd: Matthías Már
Aston Villa hefur hafið formlegar viðræður við ítalska félagið Parma um japanska markvörðinn Zion Suzuki.
Paris Saint-Germain hætti skyndilega við kaupin á Suzuki eftir að hafa náð samkomulagi við bæði leikmanninn og Parma.
Umboðsmaður hans fór fram á háa þóknun á síðustu stundu og PSG ákvað í kjölfarið að hætta við félagaskiptin.
Enskir og ítalskir fjölmiðlar segja Villa nú komið í bílstjórasætið. Félagið hefur hafið formlegar viðræður við Parma og telur sig geta fengið Suzuki fyrir 25 til 30 milljónir punda.
Koma Suzuki gæti opnað dyrnar fyrir Emiliano Martínez að ganga í raðir Juventus.
Ítalska félagið hefur elt argentínska landsliðsmarkvörðinn í sumar en Villa hafnaði tilboði upp á tæpar 5 milljónir punda og ákvað Juventus að draga sig úr viðræðunum í kjölfarið.
Juventus hefur einnig sýnt Suzuki áhuga en eins og staðan er núna virðist líklegra að hann endi hjá Villa.