15.08.26 - 14:56
Brynjar Ingi Erluson
Baulað á Enzo í sigri Chelsea á Sociedad - Orri Steinn byrjaði

Stuðningsmenn Chelsea eru ekki sáttir með Enzo

Mynd: EPA

Orri Steinn byrjaði hjá Sociedad

Chelsea vann Orra Stein Óskarsson og félaga hans í Real Sociedad, 3-1, í síðasta æfingaleik liðanna fyrir tímabilið á Stamford Bridge í dag.
Nýi maðurinn Morgan Rogers kom Chelsea yfir á 11. mínútu en Jon Aramburu jafnaði með frábæru skoti fyrir utan vítateig undir lok fyrri hálfleiks.
Joao Pedro skoraði annað mark Chelsea snemma í þeim síðari og gerði síðan þriðja markið tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok. Brasilíumaðurinn hefur verið í miklu stuði og lýkur undirbúningstímabilinu með sex mörk.
Enzo Fernandez sneri aftur í leikmannahóp Chelsea eftir að hafa verið sterklega orðaður við Manchester City síðustu daga. Chelsea gaf City frest til klukkan 16:00 í gær til að leggja fram 120 milljóna punda tilboð en ekkert barst. City er þó enn sagt halda í vonina um að fá hann fyrir gluggalok.
Enzo kom inn á þegar hálftími var eftir og var baulað á hann. Hluti stuðningsmanna Chelsea virðist greinilega ósáttur við umræðuna um mögulega brottför hans.
Það vakti einnig athygli að Liam Delap og Nicolas Jackson voru ekki í leikmannahópnum. Þeir eru allir taldir líklegir til að yfirgefa Chelsea áður en glugginn lokar.
Orri Steinn, fyrirliði íslenska landsliðsins, var í byrjunarliði Real Sociedad sem hefur einnig lokið undirbúningstímabilinu.
Sociedad mætir Real Betis í fyrstu umferð La Liga um næstu helgi. Fyrsti deildarleikur Chelsea verður gegn Fulham á Craven Cottage 24. ágúst.
Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace töpuðu 2-0 fyrir Freiburg í síðasta æfingaleik sínum áður en liðið mætir Everton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar eftir viku.

Mixed reaction for Enzo Fernandez as he comes on.
— ChelsTransfer (@ChelsTransfer) August 15, 2026
Loud boos followed by ‘Ohhh Enzo Fernandez’ chants.
Comes on and takes the captains armband as Reece James is substituted. pic.twitter.com/ickcfWxFWp

Orri Steinn byrjaði hjá Sociedad

Mynd: EPA