15.08.26 - 12:47
Brynjar Ingi Erluson
Bosnískur landsliðsmaður á leið til Newcastle

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle er að landa bosníska bakverðinum Amar Dedic frá Benfica, en það er Fabrizio Romano sem segir frá þessu á X.
Newcastle hefur unnið að kaupum á Dedic frá Benfica síðustu daga.
Félagaskiptaglugginn hefur ekki gengið að óskum hjá Newcastle. Félagið hefur misst nokkra lykilmenn og orðið undir í baráttunni um fleiri leikmenn.
Newcastle vonast þó til að enda gluggann af krafti og hefur nú náð samkomulagi við Benfica um kaup á Dedic fyrir rúmar 30 milljónir punda. Portúgalska félagið fær einnig hlut af næstu sölu hans.
Benfica vildi halda Dedic en hann var staðráðinn í að fara til Newcastle og er sagður spenntur fyrir því að vinna með þýska stjóranum Matthias Jaissle.
Dedic er 23 ára gamall hægri bakvörður. Hann er fæddur og uppalinn í Austurríki en valdi að spila fyrir Bosníu vegna ættartengsla sinna. Dedic á 31 landsleik að baki og hefur skorað eitt mark, gegn Íslandi í undankeppni EM fyrir þremur árum.

???????? Newcastle have agreed deal with Benfica to sign Amar Dedi?, here we go! ????????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 15, 2026
Deal in place at €35m package with sell-on included for Benfica.
Portuguese club wanted Dedi? to stay but player wanted #NUFC move as top priority and excited to work with Matthias Jaissle. pic.twitter.com/fY25lgocHh