Fotbolti.net
15.08.26 - 13:28
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Góð byrjun hjá nýliðunum

Championship: Góð byrjun hjá nýliðunum
Canon

Mynd: Bolton Wanderers

Bolton 2 - 1 Preston NE
1-0 Sam Dalby ('14 )
2-0 Thierry Gale ('25 )
2-1 Jusef Erabi ('86 )
Bolton Wanderers hóf tímabilið af krafti og fagnaði endurkomunni í ensku B-deildina með 2-1 sigri á Preston á Toughsheet-leikvanginum í dag.

Bolton vann sér sæti í B-deildinni með sigri í umspili C-deildarinnar í vor og byrjaði vel í dag. Sam Dalby kom heimamönnum yfir á 14. mínútu eftir að Daniel Iversen, markvörður Preston, varði skot John McAtee út í teiginn.

Tíu mínútum síðar tvöfaldaði Thierry Gale forystuna með góðu skoti eftir hraða skyndisókn.

Preston mætti af meiri krafti til síðari hálfleiks og sótti stíft. Markið kom þó ekki fyrr en á 86. mínútu þegar Jusef Erabi skoraði með skalla.

Gestirnir voru hársbreidd frá því að jafna undir lokin en Bolton hélt út og fagnaði sínum fyrsta sigri á Preston í 25 ár.

Nýliðarnir eru því á toppi B-deildarinnar, að minnsta kosti í nokkrar klukkustundir.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1West Ham7+1114
2Swansea7+614
3Middlesbrough7+414
4West Brom7+314
5QPR7+312
6Charlton Athletic7-112
7Wolves6+411
8Lincoln City7011
9Southampton7+1010
10Birmingham7+110
11Millwall7010
12Stoke City7010
13Bristol City7-210
14Norwich709
15Sheffield Utd7-19
16Blackburn708
17Watford7-28
18Portsmouth6-17
19Wrexham7-47
20Bolton7-57
21Cardiff City7-44
22Derby County7-74
23Preston NE7-73
24Burnley7-83
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.