Fotbolti.net
15.08.26 - 13:15
Brynjar Ingi Erluson

Hlín skoraði tvennu og Emelía með fullt hús stiga

Hlín skoraði tvö fyrir Malmö

Hlín skoraði tvö fyrir Malmö

Canon

Mynd: Malmö

Kvennaboltinn
Hlín Eiríksdóttir var í stuði með Malmö sem niðurlægði Uppsala, 6-0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Hlín skoraði tvennu í fyrri hálfleik. Hún opnaði markareikninginn á 3. mínútu og bætti öðru marki við á 38. mínútu, en Malmö fór með 5-0 forystu inn í hálfleikinn.

Hlín fór af velli á 52. mínútu ásamt tveimur liðsfélögum sínum enda sigurinn nánast í höfn. Malmö bætti sjötta markinu við undir lokin og vann öruggan 6-0 sigur.

Þetta voru fyrstu mörk Hlínar fyrir Malmö, sem er í 3. sæti deildarinnar með 25 stig.

Emelía Óskarsdóttir og stöllur hennar í Köge unnu þá 3-0 sigur á OB í dönsku úrvalsdeildinni.

Emelía fór af velli á 73. mínútu þegar Köge var tveimur mörkum yfir. Liðið er með fullt hús stiga á toppnum eftir þrjár umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.