Fotbolti.net
15.08.26 - 17:08
Brynjar Ingi Erluson

Lúkas hélt hreinu - Norrköping stefnir hraðbyri aftur upp

Lúkas átti frábæran leik og hélt hreinu

Lúkas átti frábæran leik og hélt hreinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lúkas Petersson hélt hreinu er varalið Hoffenheim vann 2-0 sigur á Fortuna Düsseldorf í C-deildinni í Þýskalandi í dag.
U21 árs landsliðsmarkvörðurinn er fastamaður hjá varaliði Hoffenheim og hefur einnig verið hluti af markvarðateymi aðalliðsins.

Hann átti frábæran leik gegn Düsseldorf í dag, en liðið féll úr þýsku B-deildinni í vor. Þetta var fyrsti sigur varaliðs Hoffenheim á tímabilinu.

Í B-deildinni kom Jón Dagur Þorsteinsson inn af bekknum hjá Herthu Berlín sem vann Heidenheim, 4-1. Hann lék síðustu tíu mínúturnar og Hertha er komin upp í 2. sæti með fullt hús stiga.

Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Polonia Warszawa sem tapaði 1-0 fyrir Pogon Siedlce í pólsku B-deildinni. Polonia er í 3. sæti með sjö stig en þetta var fyrsta tap liðsins á tímabilinu.

Benoný Breki Andrésson kom inn á sem varamaður hjá Stockport County sem vann Plymouth, 3-1, í fyrstu umferð ensku C-deildarinnar.

Hólmbert Aron Friðjónsson var fremstur hjá Gwangju, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa bjargað manni úr brennandi bíl á hraðbraut í Suður-Kóreu. Gwangju tapaði leiknum 2-1 og er áfram á botninum með ellefu stig.

Jakob Gunnar Sigurðsson byrjaði hjá Hilleröd sem gerði 1-1 jafntefli við Aarhus Fremad í dönsku B-deildinni.

Ólafur Hjaltason sat allan leikinn á varamannabekk Aarhus en Ingimar Arnar Kristjánsson kom við sögu. Hann gekk til liðs við félagið frá Þór á dögunum og var að leika sinn fyrsta leik fyrir danska félagið.

Aarhus er í 5. sæti með sjö stig en Hilleröd í næstneðsta sæti með eitt stig eftir fjórar umferðir.

Ísak Andri Sigurgeirsson fékk þá fimmtán mínútur í 4-1 sigri Norrköping á Sandviken í sænsku B-deildinni. Norrköping stefnir hraðbyri aftur upp í úrvalsdeildina og er á toppnum með 41 stig, sex stigum meira en næsta lið eftir nítján umferðir.
Ingimar Arnar þreytti frumraun sína með Aarhus Fremad

Ingimar Arnar þreytti frumraun sína með Aarhus Fremad

Canon

Mynd: Aarhus Fremad

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.