15.08.26 - 13:58
Brynjar Ingi Erluson
„Miðjan hjá Liverpool veldur mér miklum áhyggjum“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sparkspekingurinn Jamie Carragher hefur verulegar áhyggjur af miðju Liverpool fyrir komandi tímabil og telur nauðsynlegt að styrkja hana áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Andoni Iraola tók við Liverpool í sumar af Arne Slot, sem var rekinn eftir erfitt tímabil.
Miðsvæðið var eitt helsta vandamál Liverpool á síðustu leiktíð og áttu andstæðingarnir oft auðvelt með að spila í gegnum liðið.
Stuðningsmenn hafa kallað eftir styrkingu á miðjuna, sérstaklega varnarsinnuðum miðjumanni. Carragher telur brýnt að félagið fái slíkan leikmann áður en glugginn lokar.
„Miðjan er mikið áhyggjuefni fyrir mig og risastórt vandamál hjá Liverpool.“
„Vandamálið á síðustu leiktíð var að það myndaðist of mikið pláss um allt miðsvæðið. Það vandamál er ekki horfið og gæti orðið enn stærra með Szoboszlai þar.“
„Það virðist sem hann verði notaður þar frekar en í tíunni. Þá spilar hann væntanlega við hlið Gravenberch og verður þetta dæmigert teig í teig dæmi.“
„Þessi miðja veldur mér miklum áhyggjum,“ sagði Carragher í Overlap.