15.08.26 - 10:14
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin sem Albert og Andri skoruðu í gær

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Landsliðsmennirnir Albert Guðmundsson og Andri Lucas Guðjohnsen voru báðir á skotskónum í gær en hér að neðan má sjá mörkin sem þeir skoruðu.
Albert skoraði í 4-1 sigri Fiorentina gegn B-deildarliðinu Benevento í 2. umferð ítalska bikarsins. Albert kom liðinu yfir með skallamarki aðeins á 2. mínútu.
Andri Lucas skoraði í fyrstu umferð Championship-deildarinnar. Hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Oladapo Afolayan í 2-2 jafntefli Blackburn gegn Wolves.