15.08.26 - 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Stuðningsmenn ósáttir við vinnubrögð Bournemouth sem biðst afsökunar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stuðningsmenn Bournemouth hafa gagnrýnt vinnubrögð félagsins eftir að það sagði upp starfsmanni til tuga ára í gegnum tölvupóst.
Ryan David, stuðningsmaður Bournemouth, greindi frá því á X að ættingi hans hefði fengið tölvupóst frá félaginu þar sem honum var tilkynnt um starfslok aðeins tveimur vikum fyrir nýtt tímabil.
Maðurinn hafði starfað fyrir Bournemouth í 60 ár og sinnt ýmsum verkefnum, allt frá sölu leikskrár á leikdögum til umsjónar með bílastæðum við völlinn.
Bournemouth hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar viðurkennir félagið að illa hafi verið staðið að breytingunum og heitir því að bæta vinnubrögðin.
„AFC Bournemouth er meðvitað um þær áhyggjur sem hafa komið fram vegna breytinga á starfsliði félagsins á leikdögum.“
„Við höfum farið yfir hvernig tilkynnt var um breytingarnar til fólks sem hefur lengi tilheyrt leikdagateyminu. Við viðurkennum að það samræmdist ekki þeim kröfum sem við gerum til okkar sjálfra sem félags.“
„Þetta er fólk sem hefur þjónað Bournemouth árum saman og á skilið að komið sé fram við það af virðingu og þakklæti. Við höfum haft samband við þá sem málið varðar, munum hlusta á áhyggjur þeirra og fara yfir hvert tilfelli fyrir sig.“
„Í undirbúningi okkar fyrir nýtt tímabil höfum við gert breytingar á störfum og ábyrgð starfsfólks á leikdögum. Markmiðið er að auka öryggi á leikvanginum og svæðinu í kringum hann.“
„Þessar breytingar eru mikilvægar en það skiptir ekki síður máli hvernig við tölum við og komum fram við fólk sem hefur þjónað félaginu. Við hefðum átt að standa betur að málum og munum gera betur í framtíðinni.“
„Við erum þakklát öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum fyrir Bournemouth í gegnum árin, sérstaklega þeim sem hafa starfað fyrir félagið í marga áratugi,“ segir í yfirlýsingu Bournemouth.

Club Statement.
— AFC Bournemouth ???? (@afcbournemouth) August 15, 2026
???? https://t.co/pOvwAhJoh6 pic.twitter.com/tLNGZa6h5J

Mynd: EPA