15.08.26 - 15:54
Brynjar Ingi Erluson
Thelma í miklu stuði - Heiða lagði upp sigurmarkið

Thelma hefur skorað þrjú í síðustu fjórum leikjum

Mynd: KSÍ

Heiða Ragney lagði upp sigurmark Eskilstuna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Karen Pálmadóttir er áfram í stuði með sænsku meisturunum Häcken en hún skoraði eitt af mörkum liðsins í 6-0 stórsigri á Brommapojkarna í úrvalsdeildinni í dag.
Thelma, sem er aðeins 18 ára, hefur farið frábærlega af stað á sínu fyrsta tímabili með Häcken.
Hún skoraði þriðja mark liðsins snemma í síðari hálfleik og er nú komin með þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum.
Häcken er á toppi deildarinnar með 39 stig, fimm stigum meira en Hammarby í öðru sæti.
Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn af bekknum hjá Eskilstuna og lagði upp sigurmarkið í 1-0 sigri á Rosengård.
Hún kom inn á 65. mínútu og lagði upp mark Bellu Sember rúmum fimmtán mínútum síðar. Eskilstuna er í 5. sæti með 23 stig, tveimur stigum frá Evrópusæti.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom við sögu í 4-1 tapi FCK gegn Fortuna Hjörring í dönsku úrvalsdeildinni.
Hún byrjaði á bekknum en kom inn á þegar stundarfjórðungur var eftir. FCK er án stiga á botninum eftir þrjár umferðir.
Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann sem vann öruggan 3-0 sigur á Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni. Brann er með sjö stiga forystu á toppnum.
Eyrún Embla Hjartardóttir byrjaði hjá varaliði Häcken sem tapaði fyrir Linköping, 2-1, í sænsku B-deildinni. Sigurmark Linköping kom undir lokin en þetta var þrettánda tap varaliðsins í deildinni sem er á botninum með aðeins eitt stig.