15.08.26 - 15:19
Brynjar Ingi Erluson
Umboðsmaðurinn eyðilagði draum Suzuki

Zion Suzuki í leik með japanska landsliðinu

Mynd: EPA

Zion Suzuki í leik með japanska landsliðinu

Mynd: EPA
Japanski landsliðsmarkvörðurinn Zion Suzuki gengur ekki í raðir Evrópumeistara Paris Saint-Germain eftir að félagið hætti við skiptin vegna græðgi umboðsmanns hans.
Suzuki, sem hefur leikið frábærlega með Parma á Ítalíu, hafði náð samkomulagi við Paris Saint-Germain um kaup og kjör.
Félögin voru einnig búin að semja um 35 milljóna evra kaupverð og aðeins nokkur smáatriði voru eftir. Suzuki átti jafnframt að gangast undir læknisskoðun hjá PSG í dag.
Á síðustu stundu fór umboðsmaður hans hins vegar fram á óhóflega háa þóknun. PSG neitaði að ganga að kröfunum og hætti við félagaskiptin.
Fabrice Hawkins hjá RMC Sport greinir frá þessu og Fabrizio Romano tekur undir fréttina.
Juventus hefur enn mikinn áhuga á Suzuki, en samkvæmt Ben Jacobs og Romano er Aston Villa einnig komið í baráttuna.

????Exclusif - Zion Suzuki ne signera finalement pas au PSG.
— Fabrice Hawkins (@FabriceHawkins) August 15, 2026
Le Paris Saint-Germain et Parme étaient d’accord. Les deux clubs échangeaient les documents pour la signature du gardien japonais etune visite médicale prévue aujourd’hui … mais les commissions réclamées au dernier… pic.twitter.com/A9JiBHBeLI