Fotbolti.net
15.08.26 - 13:04
Brynjar Ingi Erluson

Ungur Ekvadori til Brentford og lánaður beint til Sigurðar og félaga

Darwin Guagua (t.v.) í leik með Independiente del Valle

Darwin Guagua (t.v.) í leik með Independiente del Valle

Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford er að kaupa hinn 18 ára gamla Darwin Guagua frá Independiente del Valle frá Ekvador.
Brentford hefur náð munnlegu samkomulagi við ekvadorska félagið um kaup á Guagua.

Þessi ungi miðjumaður á tvo A-landsleiki fyrir Ekvador auk tveggja leikja með U20 ára landsliðinu.

Guagua mun skrifa undir hjá Brentford á næstu dögum en verður síðan lánaður beint til Merida í spænsku C-deildinni. Bæði félögin eru í eigu enska viðskiptamannsins Matthew Benham.

Sigurður Bjartur Hallsson hefur verið á mála hjá Merida frá því hann kom þangað frá FH í byrjun árs. Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson leikur þá með Brentford.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.