Fotbolti.net
15.09.19 - 17:47
Rögnvaldur Már Helgason

Kristján: Ferlega vel útfært hjá mínum leikmönnum

Auglýsing
Kristján: Ferlega vel útfært hjá mínum leikmönnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Við erum fyrst og fremst sátt við frammistöðuna, við spiluðum virkilega góða vörn og sköpuðum okkur í fyrri hálfleik, upp úr góðum leik, tvö dauðafæri," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir markalaust jafntefli gegn Þór/KA í dag.
„Heilt yfir þá er leikurinn þannig að við eigum að vinna hann. Ég held að Þór/KA fái ekki nein opin færi í leiknum en við fáum tvö mjög góð í fyrri hálfleik. Við erum ekkert að eltast við það, leikurinn fór jafntefli og við erum sátt við hvernig við spilum. Þetta var ferlega vel útfært hjá mínum leikmönnum á vellinum."



Kristján segir að liðið hafi ekki náð sínum markmiðum enn.



„Það eru ákveðnir hlutir sem við viljum ná fram fyrir seinustu leikina og við erum ekki búin að ná þeim. Stelpurnar spiluðu eftir því sem þær ákváðu að setja sér upp fyrir leikinn, eða þessa þrjá leiki og sérstaklega kannski þennan. Mér fannst þær gera það virkilega vel."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.