Fotbolti.net
15.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Bellamy: Ég er á réttum stað

Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales.

Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales, segist vera með allan hug á starfi sínu og segir að það hafi verið sín ákvörðun að hafna tilboði frá Burnley í sumar.

Bellamy átti í viðræðum um að taka við Burnley og þær voru að sögn komnar ansi langt. Velska fótboltasambandið hafði veitt Bellamy leyfi til að ræða við Championship-félagið.

Bellamy viðurkennir að tilboðið hafi verið lokkandi en hann hafi á endanum ákveðið að halda tryggð við Wales og sefnir á að stýra þjóð sinni á EM 2028 sem verður á heimavelli, á Bretlandseyjum.
„Ég þurfti að taka ákvörðun og hún var tekin. Það slitnaði ekki upp úr viðræðum, ég sagði nei. Ég fór í viðræður en niðurstaðan var sú að ég vildi vera áfram með Wales. Ég er á réttum stað," segir Bellamy.

„Það er góð tilfinning að vera eftirsóttur en fyrir mig og fjölskyldu mína er þetta rétti staðurinn. Ég er með einbeitinguna algjörlega á þessu verkefni."

Hluti stuðningsmanna Wales voru óánægðir með að Bellamy hafi farið í viðræður við Burnley en hann hefur tækifæri á að vinna þá aftur á sitt band í komandi landsleikjaglugga þar sem Wales mætir Portúgal, Danmörku og Noregi í Þjóðadeildinni.
Bellamy: Ég er á réttum stað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.