15.09.26 - 20:58
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Liverpool sló út Tottenham - 16 ára í aðalhlutverki hjá Arsenal

Max Dowman átti frábæran leik með Arsenal

Mynd: EPA

Alexis Mac Allister skoraði og lagði upp í sigri Liverpool á Tottenham

Mynd: EPA

Oscar Bobb var hetja Fulham

Mynd: EPA

Szoboszlai skoraði stórbrotið mark undir lokin

Arsenal, Brentford, Fulham, Liverpool og Peterborough eru komin áfram í 16-liða úrslit enska deildabikarsins.
Arsenal vann þægilegan 4-2 sigur á Ipswich á Portman Road.
Níu breytingar Mikel Arteta virtust engu máli skipta. Hinn 16 ára gamli Max Dowman byrjaði og kom Arsenal yfir eftir aðeins sjö mínútur þegar hann fékk boltann frá Eberechi Eze, lék á varnarmann og kláraði vel.
Noni Madueke tvöfaldaði forystuna eftir slæmt spil Ipswich úr vörninni og Dowman bætti síðan við sínu öðru marki strax í upphafi síðari hálfleiks. Ellefu mínútum síðar gerði Mikel Merino fjórða markið.
Anis Mehmeti klóraði í bakkann fyrir Ipswich hálftíma fyrir leikslok áður en Chuba Akpom náði í annað undir lokin. Engu að síður öruggur sigur Englandsmeistaranna sem eru komnir áfram á meðan Ipswich er úr leik.
Sturlað mark Szoboszlai í sigri á Tottenham
Liverpool er einnig komið áfram eftir 3-1 sigur á Tottenham á Anfield.
Ronald Araujo var sá eini sem hélt sæti sínu í byrjunarliði Liverpool og gestirnir gerðu átta breytingar á sínu liði.
Giorgi Mamardashvili átti líklega sinn besta leik í treyju Liverpool og varði nokkur frábær færi frá Tottenham. Skömmu síðar braut Alexis Mac Allister ísinn með glæsilegu marki úr teignum þegar hann stýrði boltanum upp í hægra hornið.
Cody Gakpo bætti við öðru marki á 54. mínútu eftir sendingu frá Mac Allister og kom Liverpool í þægilega stöðu.
Tottenham minnkaði muninn þegar Conor Gallagher stýrði boltanum í netið eftir hornspyrnu og Mamardashvili þurfti aftur að koma Liverpool til bjargar undir lokin. Omar Marmoush slapp þá inn fyrir vinstra megin og skaut boltanum af varnarmanni en markvörðurinn brást frábærlega við og varði aftur fyrir endamörk.
Savio fékk síðan frábært færi en setti boltann framhjá áður en Dominik Szoboszlai lokaði leiknum með stórbrotnu marki. Hann tók á móti háum bolta á bringuna og hamraði honum viðstöðulaust upp í hægra hornið. Draumamark hjá Ungverjanum sem gulltryggði Liverpool sæti í næstu umferð.
Brentford, Fulham og Peterborough áfram
Callum Wilson og Fabio Carvalho tryggðu Brentford 2-1 sigur á Reading.
Fulham vann 3-2 útisigur á West Ham þar sem Rodrigo Muniz, Cesar Palacios og Oscar Bobb skoruðu mörkin. Bobb gerði sigurmarkið tólf mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Peterborough er einnig komið áfram eftir sigur á Barnsley í vítaspyrnukeppni. Staðan var 3-3 eftir venjulegan leiktíma en Peterborough hafði betur, 7-6, í vítunum.
Úrslit og markaskorarar:
Peterborough United 3 - 3 Barnsley (7-6 eftir vítakeppni)
0-1 Cameron McGeehan ('2 )
1-1 Harry Leonard ('19 )
2-1 Danny Ormerod ('27 )
2-2 Reyes Cleary ('40 )
2-3 Reyes Cleary ('74 )
3-3 Danny Ormerod ('88 )
West Ham 2 - 3 Fulham
0-1 Rodrigo Muniz ('13 )
1-1 Morato ('16 )
1-2 Cesar Palacios ('37 )
2-2 Pablo ('45 )
2-3 Oscar Bobb ('78 )
Ipswich Town 2 - 4 Arsenal
0-1 Max Dowman ('7 )
0-2 Noni Madueke ('16 )
0-3 Max Dowman ('47 )
0-4 Mikel Merino ('58 )
1-4 Anis Mehmeti ('62 )
2-4 Chuba Akpom ('90 )
Liverpool 3 - 1 Tottenham
1-0 Alexis Mac Allister ('21 )
2-0 Cody Gakpo ('54 )
2-1 Conor Gallagher ('69 )
3-1 Dominik Szoboszlai ('90 )
Reading 1 - 2 Brentford
0-1 Callum Wilson ('3 )
0-2 Fabio Carvalho ('45 )
1-2 Paudie O'Connor ('72 )