15.09.26 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson
Refsað fyrir ógeðfellda söngva um Jota

Stuðningsmenn Al Taawoun reyndu að koma Neves úr jafnvægi með að syngja um Jota

Mynd: EPA

Aganefnd sádi-arabísku deildarinnar hefur refsað Al Taawoun vegna söngva stuðningsmanna félagsins um Diogo Jota, fyrrum leikmann Liverpool og portúgalska landsliðsins.
Stuðningsmenn félagsins sungu um Jota í átt að Ruben Neves, leikmanni Al-Hilal, í deildarleik á dögunum. Jota lést í bílslysi á síðasta ári en hann var besti vinur Neves og léku þeir saman bæði hjá Wolves og með portúgalska landsliðinu.
Tilgangurinn var að reyna að koma Neves úr jafnvægi en það tókst svo sannarlega ekki þar sem Al-Hilal vann leikinn 6-0.
Neves var þó allt annað en sáttur eftir leik og sagðist vona að stuðningsmennirnir myndu ekki biðjast fyrirgefningar fyrir hegðunina.
Cristiano Ronaldo, aðalstjarna deildarinnar, kallaði eftir viðbrögðum og vildi að stuðningsmennirnir yrðu dæmdir í ævilangt bann frá fótboltavöllum.
Deildin hefur nú staðfest refsingu Al-Taawoun. Félagið þarf að leika næstu tvo heimaleiki fyrir luktum dyrum og greiða rúmar þrjár milljónir íslenskra króna í sekt.