Fotbolti.net
15.09.26 - 20:45
Brynjar Ingi Erluson

Stórliðin vilja ósátt ungstirni Man Utd - Gæti farið í næsta mánuði

JJ Gabriel gæti yfirgefið United í næsta mánuði

JJ Gabriel gæti yfirgefið United í næsta mánuði

Canon

Mynd: Man Utd

Real Madrid er talið leiða baráttuna um enska undrabarnið JJ Gabriel sem er á mála hjá Manchester United. Þetta segir Athletic í kvöld.
Helsta vonarstjarnan vill fara frá Man Utd
TENGT EFNI

Helsta vonarstjarnan vill fara frá Man Utd

Gabriel er 15 ára gamall og talinn einn allra efnilegasti leikmaður Manchester United.

Hann hefur óvænt óskað eftir því að yfirgefa félagið og farið fram á að verða afskráður. Barcelona, Bayern München, Paris Saint-Germain og Real Madrid hafa öll áhuga á honum takist United ekki að sannfæra strákinn.

Samningur Gabriel rennur út eftir tímabilið en Athletic segir stöðu hans vera nokkuð sérstaka. Þar sem hann er ekki fullur þátttakandi í fulltímaprógrammi félagsins og fær heimakennslu í stað þess að ganga í skóla, gæti hann tæknilega yfirgefið United þegar hann verður 16 ára þann 6. október.

Það veltur þó á því hvort Gabriel sé með írskt eða kýpverskt vegabréf í gegnum fjölskyldu sína. Slíkt vegabréf gæti gert honum kleift að semja við félag innan Evrópusambandsins tveimur árum fyrr en ef hann væri eingöngu með breskt vegabréf. Eftir Brexit mega enskir leikmenn almennt ekki ganga til liðs við félög innan ESB fyrr en þeir verða 18 ára.

Joe O'Cearuill, faðir Gabriel, er írskur og lék tvo landsleiki fyrir þjóðina en móðir hans er af kýpverskum ættum.

Real Madrid hefur fylgst náið með Gabriel og er sagt langlíklegasti áfangastaður hans. Hann fylgir nánast öllum leikmönnum félagsins á Instagram, ásamt nokkrum goðsögnum þess og akademíunni. Ýmislegt bendir því til þess að Real Madrid sé efst á óskalistanum hjá honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.