Fotbolti.net
15.10.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Bazoumana Toure vekur áhuga Man Utd og Arsenal

Bazoumana Toure, leikmaður Newcastle.

Bazoumana Toure, leikmaður Newcastle.

Canon

Mynd: Newcastle

Powerade
Það er komið að slúðrinu en BBC tók saman það helsta. Manchester United kemur nokkuð mikið við sögu í pakka dagsins.
Framtíð argentínska varnarmannsins Lisandro Martínez (28) hjá Manchester United er í óvissu eftir gagnrýni hans á stjórnendur félagsins og efasemdir eru um að samningur hans verði framlengdur næsta sumar. (Sky Sports)

Manchester United og Arsenal fylgjast grannt með framherjanum Bazoumana Toure (20) frá Fílabeinsströndinni, þrátt fyrir að hann hafi aðeins gengið í raðir Newcastle United frá Hoffenheim í sumar. Hann skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark í síðasta mánuði. (CaughtOffside)

Getafe hefur áhuga á að fá enska vængmanninn Jadon Sancho (26) sem er án félags. Spánverjarnir skoða leiðir til að uppfylla launakröfur leikmannsins. (DAZN)

Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, segir að brasilíski framherjinn Endrick (20) þurfi ekki að yfirgefa félagið á láni í janúar. Hann telur að leikmaðurinn muni þróast í að verða lykilmaður hjá Madrídingum. (TNT Sports Brazil)

Vitor Pereira, fyrrum stjóri Wolves og Nottingham Forest, stefnir að því að snúa aftur til starfa í ensku úrvalsdeildinni og hefur verið orðaður við Fulham. (Talksport)

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, er talinn líklegastur til að taka við Manchester United ef félagið kýs að skipta Michael Carrick út. (The Sun)

Antonio Conte, fyrrverandi stjóri Chelsea, og Julian Nagelsmann, fyrrverandi landsliðsþjálfari Þýskalands, eiga einnig aðdáendur meðal stjórnenda Manchester United. (Talksport)

Liverpool hefur aukið áhuga sinn á mexíkóska miðjumanninum Gilberto Mora (18) og vonast til að ganga frá kaupum á honum frá Club Tijuana í janúar. (Teamtalk)

Leeds óttast að félagið gæti misst varnarmanninn Tarik Muharemovic (23) næsta sumar en Bayern München er eitt af þeim félögum sem hafa áhuga. (Football Insider)

Barcelona fylgist með þýska framherjanum Nicolo Tresoldi (22) sem skoraði þrennu fyrir Club Brugge gegn Inter á þriðjudaginn. (Fichajes)
Brasilíumaðurinn Endrick.

Brasilíumaðurinn Endrick.

Canon

Mynd: EPA

Gilberto Mora.

Gilberto Mora.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.